Öryggisatriði við notkun ilmkjarnaolía

  Heim

Oshadhi ilmkjarnaolíur

Oshadhi grunnolíur

Oshadhi synergíur

Oshadhi blómavötn

Ilmdreifitæki

Námskeið

Um Palmarosa

Um Oshadhi

Pantanir, greiðsluskilmálar og sendingar

 

Þar sem ilmkjarnaolíur eru mjög sterk efni þarf að huga að öryggisatriðum við notkun þeirra. Eftirfarandi eru almenn öryggisatriði sem nauðsynlegt er að hafa í huga:

Geymið ilmkjarnaolíur þar sem börn ná ekki til
Takið ilmkjarnaolíur aldrei inn nema undir eftirliti sérfræðings
Kynnið ykkur ávallt öryggisatriði ilmkjarnaolíu áður en þið notið hana
Þynnið ilmkjarnaolíur alltaf (t.d. með grunnolíu) áður en þær eru bornar á húð
Ef erting verður á húð vegna ilmkjarnaolíu hættið notkun strax
Notið aðeins hágæða ilmkjarnaolíur

Eitrun
Margar ilmkjarnaolíur eru eitraðar í inntöku og dæmi eru um að börn hafi dáið eftir að hafa innbyrt aðeins 5 ml af Eucalyptus olíu. Takið ilmkjarnaolíur því aldrei inn.

Eftirfarandi ilmkjarnaolíur geta valdið eituráhrifum í öllum líkamanum séu þær bornar á húð:
Boldo leaf, horseradish, mustard, birch, bitter almond, caraway, cassia, clove leaf, cinnamon bark, origanum, summer savory, wintergreen, wormseed

Ljósnæmisviðbrögð húðar
Sumar ilmkjarnaolíur geta valdið því að húð verður ofurnæm fyrir sólarljósi. Einkennin geta verið allt frá roða í húð yfir í alvarlegan bruna. Einnig geta komið fram varananlegir litablettir í húð. Ef slíkar olíur eru bornar á húð má húðin ekki verða fyrir áreiti sólarljóss í um 7 klst. svo að gott er að nota þær að kvöldi til fyrir svefninn.

Eftirfarandi ilmkjarnaolíur eru taldar valda ljósnæmi húðar:
Flestar sítrusolíur, s.s. bergamot, lemon, orange og grapefruit. Bergamot FCF veldur ekki ljósnæmi þar sem skaðleg efni í henni hafa verið fjarlægð. Aðrar olíur sem valda ljósnæmi eru rue, tagetes, cumin, lemon verbena, opopanax, angelica root, caraway, cassia og cinnamon bark

Ofnæmi
Sumar ilmkjarnaolíur eru mjög gjarnar á að valda ofnæmi í húð, sérstaklega hjá viðkvæmum einstaklingum. Viðkvæmir einstaklingar ættu ekki að bera slíkar olíur á húðina en þær eru taldar öruggar í innöndun.

Eftirfarandi ilmkjarnaolíur eru þekktir ofnæmisvaldar (* merkir að olían getur valdið alvarlegu húðofnæmi):
Elecampane eða alant root (I. helenium)**, Aniseed, Bay (P. racemosa), Benzoin (resin og olía), Calamus* ( einnig hugsanlegur krabbameinsvaldur), Cassia*, Cinnamon bark og leaf*, Citronella, Colophony resin*, Costus root**, Fennel bitter, Fig leaf absolute, Garlic oil, Jasmine absolute, Massoia, Mimosa absolute, Oakmoss og treemoss resinoids, Peru balsam*, Pines, Spearmint, Tolu balsam*, Teaseed (Camellia sinensis) olía**, Turpentine (unrectified)*, Verbena**

Erting
Sumar ilmkjarnaolíur geta valdið ertingu á húð en einkennin eru oftast ekki alvarleg og hverfa venjulega þegar notkun er hætt. Þó geta einstakar ilmkjarnaolíur (sassafras, calamus og camphor brown og yellow) valdið krabbameinsvexti sem er svar líkamans við stöðugri ertingu vegna þeirra í langan tíma.

Eftirfarandi ilmkjarnaolíur eru þekktar fyrir að valda húðertingu, sérstaklega séu þær notaðar í háum styrk:
Clove, Cinnamon bark, Cassia, Chervil, Horseradish, Mustard, Perilla, Dwarf pine, Bay (leaf), Bitter lime, Cinnamon leaf, Clove (bud, leaf og stem), Citronella, Fir needle, Ginger, Lemon, Lemongrass, Meadowsweet, Origanum, Peppermint, Pimenta leaf, Pine, Rue, Spearmint, Thyme, Wintergreen, Ajowan, Allspice, Savory (winter), Wild marjoram, Turmeric, Texas cedarwood
Einnig geta absolute valdið húðertingu í háum styrk.

Börn, ófrískar konur og eldra fólk
Kynnið ykkur ávallt öryggisatriði ilmkjarnaolía fyrir notkun. Notið aðeins öruggar olíur og forðist notkun á ertandi, ofnæmisvaldandi og eitruðum olíum (sjá að ofan). Þynnið ilmkjarnaolíur vel.

Forðist einnig eftirfarandi ilmkjarnaolíur á meðgöngu:
Basil, Cedarwood, Hyssop, Juniper berries, Clary Sage, Myrrh, Marjoram, Rosemary og stóra skammta af Peppermint.
Ef barnshafandi kona hefur upplifað fósturmissi er öruggast að sleppa ilmkjarnaolíum alveg fyrstu mánuðina.

Flogaveikir
Forðist eftirfarandi ilmkjarnaolíur:
Fennel, Sage og stóra skammta af Rosemary og Peppermint

Astmi
Farið varlega með ilmkjarnaolíur nálægt astmasjúkum, sérstaklega meðan á astmakasti stendur. Athugið að margar olíur geta valdið astmakasti og eru þau viðbrögð einstaklingsbundin. Gott er að meðhöndla astma á milli kasta og athugið að ef astminn er kvíða- eða streitutengdur þarf að meðhöndla sérstaklega þá kvilla.

Slys
Ef ilmkjarnaolíur berast í augu skolið strax með fituríkri mjólk eða jurtaolíu og svo með vatni. Ef sviði heldur áfram leitið strax læknis.

Ef óblandaðar ilmkjarnaolíur berast á húð skolið strax með jurtaolíu og þvoið síðan með sápu.

Á síðunni Meðferðareiginleikar ilmkjarnaolía er umfjöllun um öryggisatriði hverrar olíu fyrir sig.

 

______________________________________________________________

Palmarosa - Oshadhi á Íslandi

Rúna Björk Smáradóttir, B.Sc. líffræðingur
Sími: 691 3129
Netfang: palmarosa@palmarosa.is

Síðast uppfært 19. ágúst 2009