|
Sage -
Sandalwood -
Spikenard -
St. John's wort
- Tea tree -
Thyme extra -
Thyme mild -
Thyme sweet
- Valerian -
Vanilla -
Verbena -
Vetiver -
Violet leaves -
Wintergreen - Yarrow -
Ylang ylang
Sage (Salvia officinalis)
Helstu innihaldsefni:
α-
& β-Thujone,
Borneone,
β-Caryophyllene,
Camphene,
α-Humulene,
β-Pinene,
Borneol
Varúð: Forðist á meðgöngu og við brjóstagjöf. Takið alls ekki
inn. Forðist með flogaveiki og háþrýstingi. Notið í mjög lágum styrk
Eiginleikar: Notuð á feita húð og hár. Góð á frunsur og
skordýrabit. Góð gegn vöðvabólgu, liðagigt, verkjum í vöðvum og
hálsríg. Örvar ónæmiskerfi. Notuð við þunglyndi og andlegri þreytu.
Örvar skynfærin og eflir minni.
Sandalwood (Santalum album)
Helstu innihaldsefni:
α-& β-Santalol,
epi-β-Santalol,
α-Santalene,
Santalinic acid
Varúð: Getur valdið ofnæmi í einstaka tilfellum
Eiginleikar: Bakteríueyðandi, bólgueyðandi, sótthreinsandi og róandi á húð. Kemur jafnvægi á starfsemi húðar og græðir
sár. Góð við bólum, húðsýkingum, exemi, psoriasis og kláða. Mjög góð á
þurra, sprungna húð sem þarfnast raka og eldri húð. Góð í blöndur til
að nota eftir rakstur þar sem hún kemur í veg fyrir útbrot. Slakandi
og upplífgandi fyrir taugakerfið og er góð við kvíða, pirringi,
svefnleysi, taugaspennu, þunglyndi og streitu. Sótthreinsar slímhúð
öndunarfæra og er bólgueyðandi og slímlosandi. Nógu mild í innöndun
fyrir börn. Mjög góð við barkabólgu, hálsbólgu, bronkítis og
frjókornaofnæmi. Vinnur gegn kynkulda og getuleysi.
Spikenard
(Nardostachys jatamansi)
Helstu innihaldsefni:
β-Gurjunene,
Valeranone, Selinalpha-3, 7-Dien, Valencene, allo-Aromadendrene
Varúð: Engin
Eiginleikar: Góð gegn svefnleysi, streitu og taugaspennu. Notuð
gegn mígrene. Góð á húðofnæmi, bólgur, útbrot, bólgur, psoriasis.
Græðir sár og endurnýjar húðina. Notuð á eldri húð.
St. John's wort
(Hypericum perforatum)
Helstu innihaldsefni:
α-&
β-Pinene,
2-Methyloctane, Germacrene-D, trans-Ocimene,
β-Caryophyllene
Varúð: Veldur hugsanlega ljósnæmi húðar, varist notkun fyrir
sólböð.
Eiginleikar: Notuð við flösu og feitum hársverði. Góð við
bólginni, ertri húð, exemi og sárum. Einnig góð gegn sveppasýkingum.
Notuð á vöðvaverki og meiðsli á hálsi og baki. Góð gegn streitu og
taugaspennu.
Upp
Tea tree (Melaleuca
alternifolia)
Helstu innihaldsefni:
Terpinene-4-ol,
α-Terpineol,
ParaCymene, 1,8-Cineol,
α-
& γ-Terpinene
Varúð: Hugsanlegt húðofnæmi
Eiginleikar: Mjög sóttheinsandi, bakteríueyðandi og
sveppaeyðandi. Lykteyðandi og græðandi á húð. Mjög góð gegn bólum,
fílapenslum, kýlum, frunsum, sveppasýkingum, líkþornum, skordýrabitum,
exemi, útbrotum, psoriasis og vörtum. Græðir sár og brunasár og er
notuð á sólbruna. Mjög góð á feita húð. Gott að nota eftir rakstur og
vaxmeðferðir. Drepur lýs. Góð við munnangri, tannholdsbólgu og þrusku
í munni. Sótthreinsandi, hóstastillandi og slímlosandi fyrir
öndunarfæri. Mjög góð við stíflum í ennisholum og berkjum. Einnig góð
við frjókornaofnæmi, inflúensu, veirusýkingum, bronkítis og hálsbólgu.
Örvar ónæmiskerfið og er fyrirbyggjandi gegn sýkingum. Góð við
sveppasýkingu í leggöngum, útferð og kláða.
Thyme extra (thymol) (Thymus
zygis)
Helstu innihaldsefni:
Thymol, ParaCymene,
γ-Terpinene,
α-Pinene,
Carvacrol,
β-Myrcene,
Linalol
Varúð: Töluvert ertandi, innöndun getur valdið flökurleika og
höfuðverk. Forðist á meðgöngu og með háþrýstingi
Eiginleikar:
Sótthreinsandi, sveppaeyðandi og bakteríueyðandi. Mjög góð á feita
húð, kýli, bólur og sveppasýkingar. Notuð gegn sýkingum í munni.
Einnig góð gegn skordýrabiti. Mjög góð fyrir hársvörð og vinnur gegn
flösu og hárlosi. Drepur lýs. Góð við vöðvaverkjum, gigt og
liðagigt. Hreinsar lungu og er góð við ýmsum öndunarfærasýkingum.
Mjög andlega örvandi og styrkjandi fyrir taugakerfið. Vinnur gegn
andlegri þreytu, þunglyndi og þrekleysi. Eflir minni og einbeitingu.
Thyme mild (linalol)
(Thymus vulgaris)
Helstu innihaldsefni:
Linalol, Linalyl-Acetate,
Geraniol, Geranyl-Acetate,
β-Caryophyllene,
α-Terpineol,
Borneol, Thuyanol
Varúð: Forðist á meðgöngu. Getur valdið
ertingu, notist í hófi.
Eiginleikar: Mun mildari en thymol gerðin en þó notuð á
svipaðan hátt. Líklega meira róandi en örvandi á taugakerfið.
Thyme sweet
(geraniol) (Thymus vulgaris)
Helstu innihaldsefni:
Geraniol, Linalol,
Geranyl-Acetate,
β-Caryophyllene
Varúð:Forðist á meðgöngu. Getur valdið
ertingu, notist í hófi.
Eiginleikar:
Svipaðir og thyme linalol thyme sweet er þó hefðbundið meira notuð í
húðmeðferðum.
Upp
Valerian (Valeriana
officinalis)
Helstu innihaldsefni:
α-Pinene,
Valerone, Limonene, Geraniol
Varúð: Forðist á meðgöngu. Notið í hófi, ofnotkun getur valdið
drunga og sinnuleysi. Getur ert viðkvæma húð
Eiginleikar: Mjög róandi fyrir taugakerfið. Mjög góð við
svefnleysi, taugaspennu, eirðarleysi o.fl. Notuð við
óreglulegum hjartslætti og mígrene.
Vanilla (Vanilla planifolia)
(alcohol extract 45%)
Helstu innihaldsefni:
Vanillin,
paralpha-Hydroxybenzaldehyde
Varúð: Getur ert húð.
Eiginleikar: Róar tilfinningar og taugaspennu. Aðallega notuð í
ilmvötn, sérstaklega austurlensk. Mikið notuð sem bragðefni.
Verbena (Lippia citriodora)
Helstu innihaldsefni:
Geranial, Neral, Limonene,
1,8-Cineol, Arcururene,
β-Caryophyllene,
Sabinene, Geranyl-Acetate
Varúð: Forðist notkun á húð, notið aðeins í innöndun. Mjög ertandi og veldur
ljósnæmi húðar. Þekktur ofnæmisvaldur á húð. Forðist á meðgöngu
Eiginleikar: Upplífgandi og róandi. Mjög góð við þunglyndi,
fæðingarþunglyndi og þróttleysi. Vinnur gegn streitu, kvíða, svefnleysi og taugaspennu. Eykur einbeitingu.
Vetiver (Vetivera
zizanioides)
Helstu innihaldsefni:
α-
& β-Vetivone,
Vetiverol, Vetivenyl-Vetivenate, Vetivene, Vetiazulene,
δ-Cadinene
Varúð: Engin
Eiginleikar: Kemur jafnvægi á miðtaugakerfið og er notuð gegn
þrekleysi, þunglyndi, svefnleysi og taugaspennu. Góð við fæðingarþunglyndi. Notuð gegn bólum og sýkingum í
húð. Örvar endurnýjun húðar og er mýkjandi og græðandi. Örvar blóðrás
og sogæðakerfi.
Upp
Violet leaves abs 75%
(Viola odorata)
Helstu innihaldsefni:
2,6-Nonadien-1-al,
n-Heptenol, Salicylic acid, 2,6-Nonadien-1-ol, n-Hexenol
Varúð: Engin
Eiginleikar: Góð fyrir viðkvæma og háræðaslitna húð. Notuð gegn
bólum, sárum og exemi. Hreinsar svitaholur. Notuð í hágæða ilmvötn.
Yarrow (Achillea
millefolium)
Helstu innihaldsefni:
α-
& β-Pinene,
Sabinene, 1,8-Cineol, Camphene, Chamazulene, Isoartemisia- Cetone,
Borneone
Varúð: Getur valdið ertingu á húð. Langvarandi notkun getur
valdið höfuðverkjum.
Eiginleikar: Herpandi fyrir húðina og kemur jafnvægi á feita
húð. Mjög bólgueyðandi, inniheldur bólgueyðandi efnið chamazulene eins
og Chamomile blue. Mjög góð á bólur, brunasár, exem, bólgur, útbrot,
ofnæmi og vörtur. Hreinsar hár og kemur jafnvægi á feitan hársvörð.
Örvar hárvöxt.
Ylang ylang
(Cananga odorata)
Helstu innihaldsefni:
Germacrene-D,
β-Caryophyllene,
Linalol, Geranyl-& Benzyl-Acetate,
α-Humulene,
Benzyl-Benzoate
Varúð: Getur valdið ofnæmi hjá viðkvæmum einstaklingum. Hefur
þungan ilm sem getur valdið höfuðverk og ógleði, notið í hófi.
Eiginleikar: Kemur jafnvægi á taugakerfið og er mjög góð við kvíða,
hræðsluköstum, pirringi, skapsveiflum,
taugaspennu og þunglyndi. Hefðbundin talin kynorkuaukandi og vinnur gegn getuleysi og
kynkulda. Góð gegn fyrirtíðaspennu og einkennum tíðahvarfa.
Lykteyðandi og róandi á húð. Kemur jafnvægi á fituframleiðslu húðar og
berst við bakteríur sem valda bólum. Örvar hárvöxt.
Upp
|