Ilmkjarnaolíur P-R
- meðferðareiginleikar -

Heim Oshadhi ilmkjarnaolíur Meðferðareiginleikar ilmkjarnaolía Ilmkj.olíur A-C Ilmkj.olíur D-J Ilmkj.olíur L-O Ilmkj.olíur S-Y

Palmarosa - Patchouli - Pepper black - Peppermint - Petitgrain - Pine - Ravensara - Rose abs. - Rose Bulgar og Turkish (eimuð) - Rosemary - Rosewood

Palmarosa (Cymbopgon martinii)
Helstu innihaldsefni:
Geraniol, Linalol, Nerol, Geranyl-Acetate, Farnesol, γ-Terpinene, β-Caryophyllene
Varúð: Engin
Eiginleikar: Bakteríueyðandi og sveppaeyðandi. Örvar endurnýjun húðar, kemur reglu á fituframleiðslu og gefur raka. Mjög góð á þurra húð, útbrot og bólur. Slímlosandi fyrir öndunarkerfið. Róandi fyrir taugakerfið og upplífgandi fyrir tilfinningar. Góð gegn streitu og streitutengdum vandamálum, pirringi og þreytu.

Patchouli (Pogostemon patchouli)
Helstu innihaldsefni:
α-Guaien, α-Bulnesene, Patchoulene, Seychellene, β- Caryophyllene, Patchoulol
Varúð: Notist ekki með cinnamon og juniper. Mjög sterkur ilmur, notið í hófi.
Eiginleikar: Mjög góð gegn ýmsum húðvandamálum, s.s. bólum, sveppasýkingum, sprunginni þurri húð, útbrotum, exemi, feitri húð, sárum, örum og hrukkum. Vinnur gegn þunglyndi, drunga og örmögnun.

Pepper black (Piper nigrum)
Helstu innihaldsefni:
α- & β-Pinene, β-Caryophyllene, α-Humulene, Guaien, Cubeben
Varúð: Ertandi á húð í háum styrk.
Eiginleikar: Verkjastillandi og mikið notuð í blöndur gegn ýmsum vandamálum í stoðkerfi, s.s. liðagigt, vöðvabólgu, gigt, tognun og á stífa vöðva. Slímlosandi fyrir öndunarkerfi og góð gegn ennisholustíflum, bronkítis, hósta, kvefi og inflúensu. Meltingarörvandi og góð við ristilbólgu, hægðatregðu, niðurgangi, vindgangi, brjóstsviða og flökurleika. Örvar blóðrás og er hitandi. Örvar taugakerfi og eykur einbeitingu og eftirtekt.

Peppermint (Mentha piperita)
Helstu innihaldsefni:
Menthol, 1,8-Cineol, Menthone, Menthyl-Acetate, Neo-Menthol, Iso-Menthol, α- & β-Pinene, Limonene
Varúð: Eitruð í háum styrk. Getur valdið ofnæmi og ertingu á húð. Notist í hófi. Forðist beina innöndun hjá börnum vegna hættu á krampa í raddböndum. Forðist á meðgöngu og við brjóstagjöf.
Eiginleikar: Verk- og vindeyðandi, krampaeyðandi og örvar meltingu. Góð við hvers kyns meltingarvandamálum, s.s. niðurgangi, meltingartruflunum, uppþembu, ógleði og farveiki. Hreinsar og sótthreinsar öndunarfæri og losar stíflur. Góð við ýmsum öndunarfæravandamálum, s.s. ennis- og kinnholubólgu, bronkítis, kvefi, hálsbólgu og inflúensu. Örvar blóðrás og sogæðakerfi. Vinnur gegn vökvasöfnun. Kælandi á húð og er góð við bólum, fílapenslum og sveppasýkingum. Andlega örvandi og góð við þunglyndi og andlegri þreytu. Eflir minni og einbeitingu. Góð við höfuðverk og migrene. Skordýrafæla (sérstaklega moskító).
Upp

Petitgrain Bigarade (Citrus aurantium aur.)
Helstu innihaldsefni:
Linalyl-Acetate, Geranyl-Acetate, Linalol, Geraniol, Nerol, α-Terpineol
Varúð: Engin
Eiginleikar: Góð gegn andlegri þreytu, þunglyndi, svefnleysi, reiði og streitu. Notuð gegn bólum, feitri húð og feitum hársverði. Lykteyðandi og góð við mikilli svitamyndun. Örvar ónæmiskerfið.

Pine Scots (Pinus sylvestris)
Helstu innihaldsefni:
α- & β-Pinene, Limonene, Longifolene, Borneol, alpha-Cadinol
Varúð: Getur ert húð, farið varlega á rofna húð. Forðist daglega notkun. Notið ekki með Peru balsam, Spruce og Tolu balsam.
Eiginleikar: Örvar og auðveldar öndun og hreinsar öndunarveg. Sótthreinsar lungu og berkjur. Slímlosandi og hreinsar ennisholur. Vinnur gegn krónískum bronkítis, slímhúðarbólgu, hósta, ennis- og kinnholubólgu, hálsbólgu og barkabólgu. Góð gegn verkjum og stífni í vöðvum og liðum. Notuð við liðagigt og gigt. Andlega örvandi og notuð gegn þrekleysi og andlegri örmögnun.

Ravensara (Ravensara aromatica)
Helstu innihaldsefni: Anethol, Methyl-Chavicol, 1,8-Cineol
Varúð: Engin
Eiginleikar: Mjög örvandi fyrir ónæmiskerfið og hraðar bata eftir veikindi. Góð á feita húð og bólur. Örvar sogæðakerfið og er mjög góð við bjúg. Notuð gegn stíflum í öndunarfærum og verkjum í stoðkerfi.
Upp

Rose blossom absolute (Rosa centifolia eða Rosa damascena)
Helstu innihaldsefni:
Geraniol, Rhodinol, Nerol, Farnesol, Phenylethyl-Alcohol
Varúð: Engin
Eiginleikar: R. centifolia er aðallega notuð í absolute (útdráttur með lífrænum leysi) þó að R. damascena sé stundum notuð. Absolutið þykir ekki eins fínt og hið eimaða afbrigði R. damascena (sjá neðar) en hefur svipaða eiginleika. Hugsanlega er absolutið þó ekki eins virkt og eimaða olían og alltaf er betra að velja ilmkjarnaolíu frekar en absolute í húðhirðu.

Rose blossoms, Bulgar (Rose otto) (Rosa damascena)
Helstu innihaldsefni:
Citronellol, Geraniol, Nerol, Linalol, Nonadecane, Geranyl-Acetate
Varúð: Engin
Eiginleikar: Taugaróandi og kemur jafnvægi á andlega líðan. Mjög góð við svefnleysi, þunglyndi, depurð, sorg, reiði, gremju, kvíða, taugaspennu og streitutengdum vandamálum. Á húð er Rose sótthreinsandi, herpandi, græðandi og róandi. Hún hentar öllum húðgerðum og er góð á bólgur, ör, háræðaslit, bólur, frunsur og exem. Mjög góð gegn öldrunarbreitingum í húð, þrota og hrukkum. Mjög góð við hvers kyns kvennavandamálum. Rose kemur jafnvægi á óreglulegar blæðingar og stillir tíðaverki. Hún er góð við útferð, fyrirtíðaspennu og einkennum tíðahvarfa. Mjög góð í barnsfæðingu og gegn fæðingarþunglyndi. Styrkir ónæmiskerfið. Róar magann og er góð við ógleði og uppköstum.
Upp

Rosemary (Rosmarinus officinalis)
Helstu innihaldsefni Rosemary highland:
α- & β-Pinene, 1,8-Cineol, Camphene, Borneol, Borneone
Helstu innihaldsefni Rosemary verbenone:
α-Pinene, 1,8-Cineol, Camphene, Verbenon, Borneol, β-Pinene, Linalol, Bornyl-Acetate
Varúð: Forðist á meðgöngu og með háum blóðþrýstingi og flogaveiki. Mjög örvandi, notist ekki fyrir svefn. Getur ert húð.
Eiginleikar:
Rosemary highland er "venjuleg rosemary" :) Rosemary verbenone hefur svipaða eiginleika en er talin betri í húðhirðu þar sem hún örvar mjög endurnýjun húðar.
Rosemary er mjög andlega örvandi og upplífgandi. Örvar minni og eftirtekt. Mjög góð við andlegri þreytu, þunglyndi, einbeitingarskorti, þrekleysi og slæmu minni. Góð við svima, höfuðverk og mígrene. Sótthreinsandi og hitandi fyrir öndunarfæri. Örvar lungu og auðveldar öndun. Notuð gegn ýmsum sýkingum í öndunarfærum. Mjög góð við stíflum í berkjum og ennisholum, hálsbólgu, kvefi, inflúensu o.fl. Örvar hjarta og hækkar blóðþrýsting. Mjög góð við lélegri blóðrás og notuð við æðahnútum, óreglulegum hjartslætti og lágþrýstingi. Örvar sogæðar og er notuð við bjúg og appelsínuhúð. Góð við þynnku. Verkjastillandi fyrir stoðkerfi. Mjög góð við verkjum í vöðvum og vegna liðagigtar. Mjög góð í fótabað til að minnka verki og örva blóðrás. Herpandi og sótthreinsandi á húð. Bætir kirtlastarfsemi og er góð á feita húð, föla og líflausa húð, stíflaða húð, bólur og slappa húð. Mjög góð gegn hvers kyns vandamálum í hársverði, s.s. flösu, hárlosi, lús og feitum hársverði. Styrkir og örvar hárvöxt. Örvar meltingarfæri og er krampaeyðandi. Góð við hvers kyns lifrarvandamálum. Góð við uppþembu, ristilbólgum, meltingartruflunum, vindgangi og harðlífi. Örvar ónæmiskerfið.

Rosewood (Aniba roseodora)
Helstu innihaldsefni:
Linalol, α-Terpineol, Geraniol, 1,8-Cineol, Linalol-Oxide, Limonene, α-Pinene
Varúð: Engin
Eiginleikar: Róandi fyrir taugakerfið. Góð gegn höfuðverk, kvíðaþunglyndi, orkuleysi, tilfinningasemi, taugaspennu og streitu. Örvar frumuvöxt og endurnýjar húð. Mjög góð á eldri húð, kláða, útbrot, sár, og í almenna húðhirðu. Hentar öllum húðgerðum. Góð gegn sveppasýkingu í leggöngum. Notuð gegn fyrirtíðaspennu og kynkulda. Örvar ónæmiskerfið og eykur orku.

Upp

 

Palmarosa - Oshadhi á Íslandi

Rúna Björk Smáradóttir, B.Sc. líffræðingur
Sími: 691 3129
Netfang: palmarosa@palmarosa.is