|
Lavandin -
Lavender -
Lemon -
Lemongrass -
Mandarin -
Marjoram -
Melissa (Balm) -
Myrrh -
Neroli -
Niaouli -
Nutmeg -
Orange bitter -
Orange sweet
Lavandin (Lavandula
hybrida)
Helstu innihaldsefni:
Limonene, Linalol, Borneol, Linalyl-Acetate, Borneone, 1,8-Cineol
Varúð: Engin
Eiginleikar: Afbrigði sem fæst með kynblöndun lavender og
spike lavender. Hefur svipaða eiginleika og lavender en er meira
örvandi og hefur skarpari ilm. Örvar einnig blóðrás og mjög góð fyrir
vandamál í öndunarkerfi og stoðkerfi.
Lavender (Lavendula
angustifolia)
Helstu innihaldsefni
Linalyl-Acetate, Linalol,
Ocimene, Terpinene-4-ol, Lavandulol, 1,8-Cineol, Lavandulol-Acetate,
Cumarines
Varúð: Engin, en vitað er um ofnæmi hjá einstaka einstaklingum.
Eiginleikar: Lavender
er mjög öflug alhliða ilmkjarnaolía og segja má að hún sé góð fyrir
öll líkamskerfin. Á húð er hún sótthreinsandi, sveppaeyðandi,
bólgueyðandi og róandi. Hún örvar endurnýjun fruma og er mjög
græðandi. Notuð á allar húðgerðir, bólur, exem, psoriasis, kláða,
sveppasýkingar, sár, brunasár, sólbruna o.fl. Lavender er taugaróandi
og hvetur til jafnvægis. Hún er mjög góð við
eirðarleysi, kvíða, reiði, pirringi, skapsveiflum, streitu, svefnleysi
og taugaspennu. Einnig góð gegn þunglyndi. Hún kemur jafnvægi á
hormónastarfsemi og er góð við fyrirtíðaspennu, óreglulegum blæðingum
og tíðaverkjum. Lavender
eflir ónæmiskerfið og er fyrirbyggjandi gegn sýkingum. Hún er einnig
góð við ýmsum sýkingum og slími í öndunarfærum og róar og auðveldar
öndun. Einnig notuð gegn æðahnútum og hjartsláttartruflunum. Lavender er ein besta olían fyrir börn og er mikið
notuð gegn bleiubruna, magakrampa, pirringi, hósta og í ungbarnanudd.
Lemon (Citrus limonum)
Helstu innihaldsefni:
Limonene,
β-Pinene,
β-Bisabolene,
γ-Terpinene
Varúð: Gerir húð ljósnæma, notist ekki
fyrir sólböð. Getur ert viðkvæma húð.
Eiginleikar: Örvar taugakerfi. Góð gegn drunga, leiða,
áhugaleysi og höfuðverk. Bætir einbeitingu. Vökvalosandi og mikið
notuð gegn appelsínuhúð og vökvasöfnun. Bakteríueyðandi,
sveppaeyðandi, herpandi og lykteyðandi á húð. Góður húðhreinsir og er
notuð á bólur, frunsur, vörtur og líkþorn. Örvar blóðflæði í efstu
lögum húðar og lífgar upp á líflausa og þreytta húð. Góð fyrir lélegar
neglur. Notuð gegn sárum í munni og munnangri. Örvar ónæmiskerfið. Góð
við ýmsum öndunarfærasýkingum og er slímlosandi. Lemon hreinsar
andrúmsloftið og er góð skordýrafæla.
Lemongrass (Cymbobogon
flexuosus)
Helstu innihaldsefni:
Citral, Neral, Geranial,
α-Terpineol,
Geraniol
Varúð: Varist notkun á viðkvæma og rofna húð. Forðist á
meðgöngu.
Eiginleikar: Örvar blóðrás og
sogæðakerfið og er góð í blöndur gegn appelsínuhúð. Styrkir húð og er
góð við bólum, sveppasýkingum og feitri húð. Drepur lýs og er notuð
gegn feitum hársverði. Mjög góð gegn þunglyndi og höfuðverk. Einnig
góð gegn þreytu og einbeitingarskorti. Notuð við harðsperrum og þreytu
og verkjum í vöðvum.
Mandarin red (Citrus
reticulata)
Helstu innihaldsefni: Limonene,
c-Terpinene, Pinene, Terpinolene, p-Cymene, Methyl-Anthranilate
Varúð: Getur gert húð ljósnæma, varist notkun fyrir sólböð.
Eiginleikar: Róar taugarnar og er góð við svefnleysi,
eirðarleysi og taugaspennu. Upplífgandi fyrir tilfinningar. Er oft
notuð fyrir börn og á meðgöngu. Styður jafnvægisaukandi áhrif geranium
og lavender á hormónastarfsemi. Góð fyrir feita og blandaða. Örvar
sogæðakerfi.
Upp
Marjoram sweet
(Origanum marjorana)
Helstu innihaldsefni:
Terpineol-4,
γ-Terpinene,
cis-Sabinene-Hydrat, Sabinene, trans-Sabinene-Hydrat,
Linalol
Varúð: Forðist á meðgöngu. Langtímanotkun getur minnkað
kynhvöt. Forðist með astma. Varist notkun með lágum blóðþrýstingi og
þunglyndi.
Eiginleikar: Mjög róandi og góð við ofvirkni, svefnleysi,
kvíða, streitu og streitutengdum vandamálum. Mjög verkjastillandi og
vöðvaslakandi og notuð á verki í vöðvum, vöðvabólgu, liðagigt, gigt,
tognun og harðsperrur. Góð við of háum blóðþrýstingi. Einnig góð gegn
fyrirtíðaspennu, tíðaverkjum og tíðateppu.
Melissa (Balm)
(Melissa officinalis)
Helstu innihaldsefni:
β-Caryophyllene,
Germacrene-D, Geranial, Neral, Ocimene, Citronellal,
δ-Cadinene
Varúð: Getur valdið ertingu á húð, notist aðeins í lágum styrk.
Eiginleikar: Mjög góð gegn kvíða, þunglyndi, ofvirkni,
svefnleysi og taugaspennu. Góð skordýrafæla og notuð gegn
skordýrabitum. Góð á feita húð og bólur. Sveppaeyðandi. Góð við þrálátum hósta og bronkítis. Styrkir
ónæmiskerfið.
Myrrh (Commiphora myrrha)
Helstu innihaldsefni:
Furanoeuderm-α-1,3-dien,
Curcerene, Lindestrene, Elemene, Copaene, 1-Cadinol, Germacrene-D
Varúð: Forðist á meðgöngu. Varist notkun á viðkvæma og rofna
húð.
Eiginleikar: Taugaróandi og góð gegn taugaspennu. Mjög góð gegn
sýkingum og sárum í munni og tannholdsbólgu. Notuð gegn fótasvepp.
Þurrkar slím í öndunarfærum og auðveldar losun þess. Notuð við
bronkítis, slímhúðarbólgu og hósta.
Neroli (Citrus aurantium
aur.)
Helstu innihaldsefni:
α-
&
β-Pinene,
Limonene, Linalol,
α-Terpineol,
Linalyl- & Neryl-Acetate, trans-Nerolidol
Varúð: Engin
Eiginleikar: Róandi fyrir taugakerfið og upplífgandi fyrir
tilfinningar. Mjög góð gegn kvíða, streitu, fyrirtíðaspennu og svefnleysi. Einnig mjög góð gegn þunglyndi og depurð.
Græðandi, róandi og lykteyðandi á húð. Góð á ör, húðslit og háræðaslit. Róar bólgu og ertingu
í húð. Notuð á allar húðgerðir. Minnkar húðholur og vinnur gegn
ótímabærri öldrun húðar. Sveppaeyðandi. Róar öran og óreglulegan
hjartslátt. Róandi fyrir meltingarfæri og er góð við þrálátum
niðurgangi og flökurleika.
Upp
Niaouli
(Melaleuca quinquenervia virid.)
Helstu innhaldsefni:
1,8-Cineol,
α-Pinene,
Limonene,
α-Terpineol,
Viridiflorol, Nerolidol, Globulol
Varúð: Engin
Eiginleikar: Bakteríueyðandi og sterkt sótthreinsandi. Notuð
gegn bólum, graftarkýlum, sveppasýkingum og skordýrabiti. Góð á feita
húð og skán í hársverði. Góð við ýmsum öndunarfæravandamálum, s.s.
bronkítis, þrálátum hósta, slímhúðarbólgu, barkabólgu o.fl. Örvar
ónæmiskerfi og er fyrirbyggjandi gegn sýkingum. Notuð við verkjum í
vöðvum, liðagigt og gigt.
Nutmeg (Myristica fragrans)
Helstu innihaldsefni:
Pinene, Myrcene, Sabinene,
α-
& β-Terpinene,
Terpinene 1-0l-4, Myristicine, Elemicine
Varúð: Getur ert húð. Ekki eitruð í lágum styrk en í háum styrk
getur hún oförvað heila og hjarta og valdið ofskynjunum, krömpum,
óráði og dofa. Forðist á meðgöngu.
Eiginleikar: Verkjastillandi og hitandi. Góð við liðagigt,
gigt, vöðvabólgu, tognun o.fl. Verk- og vindeyðandi og örvar meltingu.
Mjög örvandi á taugakerfi og góð við andlegri örmögnun og yfirliðum.
Örvar hugann. Einnig góð við bronkítis og
hósta.
Orange bitter og
Orange sweet (Citrus aurantium)
Helstu innihaldsefni:
Limonene, Linalol,
n-Octanal, Citronellal, Carvone,
Bergaptene
Varúð: Gerir húð ljósnæma, notist ekki fyrir sólböð
Eiginleikar: Mjög góð fyrir húðina, styrkir hana og eflir
blóðrás. Notuð gegn líflausri húð, feitri húð, þrota og hrukkum.
Hjálpar stíflaðri húð. Góð gegn munnangri. Taugaróandi og góð við
taugaspennu, kvíða og streitutengdum vandamálum. Örvar ónæmiskerfið.
upp
|