Ilmkjarnaolíur D-J
- meðferðareiginleikar -

Heim Oshadhi ilmkjarnaolíur Meðferðareiginleikar ilmkjarnaolía Ilmkj.olíur A-C Ilmkj.olíur L-O Ilmkj.olíur P-R Ilmkj.olíur S-Y

Elemi - Eucalyptus globulus - Eucalyptus lemon - Eucalyptus radiata - Fennel sweet - Frankincense - Geranium - Ginger - Grapefruit - Helichrysum - Hyssop - Jasmine - Juniper berries

Elemi (Canarium luzonicum)
Helstu innihaldsefni:
Limonene, Elemicine, Elemol, Elemene, Phellandren
Varúð: Engin
Eiginleikar: Mjög styrkjandi fyrir ónæmiskerfið og því fyrirbyggjandi gegn sýkingum. Græðandi á húð og er talin koma jafnvægi á fituframleiðslu húðar og vera virk gegn of mikilli svitamyndun. Góð gegn bronkítis og slímhósta.

Eucalyptus (Eucalyptus globulus)
Helstu innihaldsefni:
1,8-Cineol, α-Pinene, Limonene, p-Cymene, Aromadendrene, γ-Terpinol, trans-Pinocarveol
Varúð: Takið alls ekki inn. Notið ekki á börn og forðist sérstaklega beina innöndun hjá börnum.
Eiginleikar: Mjög slímlosandi og sótthreinsandi fyrir öndunarkerfið. Róar bólgur í öndunarfærum og er hóstastillandi. Mjög góð við slímhósta, bronkítis, ennis- og kinnholubólgum, hálsbólgu, kvefi, frjókornaofnæmi og inflúensu. Mjög góð gegn bakteríusýkingum og einnig talin virk gegn ýmsum veirusýkingum í öndunarfærum. Vinnur á djúpliggjandi lungnasýkingum. Örvar ónæmiskerfið og er fyrirbyggjandi gegn sýkingum. Góð við ýmsum verkjum og kvillum í stoðkerfi, s.s. liðagigt, vöðvaverkjum, gigt og tognun. Einnig bakteríueyðandi á húð og góð á vörtur, frunsur, bólur og hlaupabólu. Örvar blóðrás.

Eucalyptus lemon (Eucalyptus citriodora)
Helstu innihaldsefni:
Citronellal, Citronellol, Isopulegol, Citronellyl -Acetate, β-Caryophyllene, Linalol, trans-Pinocarveol
Varúð: Engin
Eiginleikar: Euclyptus lemon er kælandi og hressandi yfir sumarmánuðina auk þess sem hann er skordýrafælandi. Virkur gegn sveppasýkingum. Einnig er hann róandi fyrir taugarnar og oft notaður gegn kvíða.

Eucalyptus radiata (Eucalyptus radiata)
Helstu innihaldsefni:
1,8-Cineol, Limonene, Neral, Geranial, α-Terpineol, β-Myrcene, Sabinene, Terpenyl-Acetate
Varúð: Farið varlega með notkun á börn
Eiginleikar: Svipaðir og hjá E. globulus en talinn mildari. E. radiata er betri ef um er að ræða öndunarfærasýkingar í efri öndunarfærum og ef nota á í langan tíma. Einnig er hann talinn öruggari í innöndun. Talinn betri gegn veirusýkingum en E. globulus.
Upp

Fennel sweet (Foenicum vulgare)
Helstu innihaldsefni:
Anethole, α-Pinene, Fenchone, Methyl-Chavicol, Limonene, Paracymene
Varúð: Getur valdið ertingu á húð. Veldur eiturverkun í stórum skömmtum, notið í hófi. Forðist á meðgöngu og með flogaveiki.
Eiginleikar: Mjög góð fyrir meltingarkerfið. Hægðalosandi og krampaeyðandi. Notuð gegn ógleði, vindgangi, hægðatregðu og meltingartruflunum. Slímlosandi fyrir öndunarkerfið og notuð gegn krampakenndum hósta, stíflum í lungum og nefi, hálsbólgu og öndunarerfiðleikum.

Frankincense (Boswellia carterii)
Helstu innihaldsefni:
α-Pinene, α-Thuyene, Limonene, p-Cymene, β-Myrcene, Gurjunene, Olibanol
Varúð: Engin
Eiginleikar: Ein besta olían fyrir taugakerfið. Kemur jafnvægi á taugastarfsemi og tilfinningar. Mjög góð við þunglyndi, streitu, pirringi, eirðarleysi, svefnleysi, kvíða, reiði og taugaspennu. Mjög góð fyrir húðina. Bólgueyðandi, sótthreinsandi og róandi og er góð á sár, exem, ör, sólbruna. Endurnýjar húð og því mikið notuð gegn ótímabærum öldrunarbreytingum í húð. Góð fyrir starfsemi lungna og dýpkar öndun.

Geranium (Pelargonium graveolens)
Helstu innihaldsefni: Citronellol, Geraniol, Citronellyl Formiate, Geranyl Formiate
Varúð: Forðist snemma á meðgöngu. Getur valdið þrota í húð hjá viðkvæmum einstaklingum.
Eiginleikar: Kemur jafnvægi á taugakerfið. Mjög góð gegn kvíða, skapsveiflum, streitu, taugaspennu og þunglyndi. Stuðlar einnig að hormónajafnvægi. Góð við tíðaverkjum, fyrirtíðaspennu og einkennum tíðahvarfa (s.s. svitakófi og þunglyndi). Örvar blóðrás og sogæðar og vinnur gegn appelsínuhúð og vökvasöfnun. Kemur jafnvægi á húð og er góð fyrir allar húðgerðir. Græðandi og sótthreinsandi og notuð á sár, exem, psoriasis, háræðaslit og bólur. Góð skordýrafæla
Upp

Ginger (Zingiber officinalis)
Helstu innihaldsefni:
Zingiberene, Linalol, Camphene, β-Phellandrene, cis-γ-Bisabolol
Varúð: Ertir húð í háum styrk. Notið ekki með Peru balsam.
Eiginleikar: Góð fyrir meltingarfærin og er notuð gegn niðurgangi, meltingartruflunum, vindgangi, flökurleika, hægðatregðu, farveiki og þynnku. Linar verki í stoðkerfinu og er góð við gigt, liðagigt, vöðvabólgu og tognun. Þurrkar slím í öndunarvegi og er góð gegn slímhúðarbólgu, kvefi, hálsbólgu o.fl.

Grapefruit (Citrus paradisi)
Helstu innihaldsefni:
Limonene, Decanal, Citronellal, Nonanal, Citral
Varúð: Getur gert húð ljósnæma, notið ekki fyrir sólböð.
Eiginleikar: Mjög hressandi og upplífgandi og góð við þunglyndi, ofþreytu og höfuðverkjum. Örvar minni og hefur áhrif gegn einbeitingarskorti. Örvar blóðrás og sogæðakerfi. Vinnur gegn appelsínuhúð og vökvasöfnun.

Helichrysum (Helichrysum italicum)
Helstu innihaldsefni:
Neryl-Acetate, Neryl-Propionate, α- & γ-Curcumene, Nerol, Italidione I+II, Italicene, α-Pinene
Varúð: Engin
Eiginleikar: Mjög góð fyrir húðina og vinnur á bólum, útbrotum, exemi og bólgum. Mikið notuð gegn háræðasliti og slitförum. Góð á vöðvabólgu og verki í stoðkerfinu. Notuð gegn þunglyndi og þrekleysi.

Hyssop (Hyssopus officinalis)
Helstu innihaldsefni:
Iso-Pinocamphone, Pinocamphone, β-Pinene, β-Ocimene, α-β-Thujone, Sabinene
Varúð: Forðist á meðgöngu og fyrir börn og eldra fólk. Forðist ef um er að ræða háþrýsting eða flogaveiki.
Eiginleikar: Góð gegn kvíða, taugaspennu og streitutengdum sjúkdómum. Græðir sár og góð við exemi, útbrotum, mari og bólgum í húð. Notuð gegn gigt og liðagigt. Auðveldar öndun og góð við bronkítis, slímhúðarbólgu, hálsbólgu og hósta.

Jasmine (Jasminum officinale)
Helstu innihaldsefni:
Benzyl-Acetate, Linalol, Linalyl-Acetate, Jasmone, Indole, Methyl-Anthranilate
Varúð: Engin. Hefur sterkan ilm, notið í hófi.
Eiginleikar: Örvandi fyrir taugakerfi og mjög upplífgandi. Mjög góð gegn þunglyndi (einnig fæðingarþunglyndi), kvíða og andlegri þreytu. Einnig mjög góð við hvers kyns tilfinningavandamálum. Veitir gleði og bjartsýni. Góð við fyrirtíðaspennu og tíðaverkjum. Hefðbundið talin auka kynhvöt.

Juniper berries (Juniperus communis)
Helstu innihaldsefni:
α-Pinene, β-Myrcene, Sabinene, Germacrene-D, Terpinene-4-ol, Bornyl-Acetate, Limonene
Varúð: Getur ert húð, notið í hófi. Forðist á meðgöngu. Notið ekki í langan tíma í senn.
Eiginleikar: Örvar blóðrás og útskilnað eiturefna. Notuð gegn appelsínuhúð og vökvasöfnun. Mjög góð við gigtarverkjum og liðagigt. Andlega örvandi og styrkir taugakerfið. Notuð við drunga og sinnuleysi. Örvar og styrkir minni.

upp

 

Palmarosa - Oshadhi á Íslandi

Rúna Björk Smáradóttir, B.Sc. líffræðingur
Sími: 691 3129
Netfang: palmarosa@palmarosa.is