|
Ilmkjarnaolíur til ánægju og
heilsubótar
Námskeið um meðferð og notkun
ilmkjarnaolía
Námskeiðslýsing:
Fjallað er um eiginleika ilmkjarnaolía, vinnslu þeirra og sögulega
notkun. Áhrif ilmkjarnaolía á líkama og huga verða rædd og ýmsar
notkunarleiðir kynntar. Farið verður í blöndun ilmkjarnaolía og munu
þátttakendur útbúa blöndur til eigin nota á námskeiðinu. Fjallað
verður ítarlega um meðferðareiginleika 20 algengra ilmkjarnaolía og
nokkurra grunnolía.
Staður og stund:
Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Ármúla 12. Næsta námskeið verður
líklega haldið í september.
Verð:
Verð á námskeiðið er kr. 13.500.- m/vsk. Innifalið í verði er vegleg
námskeiðsmappa með uppskriftum, lýsingum á ilmkjarnaolíum og áhrifum
þeirra á líkama og huga o.fl. Einnig eru efni og áhöld til blöndunar
á námskeiðinu innifalin. Með námskeiðinu fylgir afsláttarmiði í
vefverslun palmarosa.is sem gildir í tvö skipti (15% afsláttur af
Oshadhi vörum).
Skráning:
Best er að skrá sig með tölvupósti, smellið hér:
palmarosa@palmarosa.is (vinsamlegast gefið upp nafn, símanúmer
og tölvupóstfang). Einnig er hægt að skrá sig í síma 691 3129
(Rúna).

|