Fróðleikur og uppskriftir

  Heim

Oshadhi ilmkjarnaolíur

Oshadhi grunnolíur

Oshadhi synergíur

Oshadhi blómavötn

Ilmdreifitæki

Námskeið

Um Palmarosa

Um Oshadhi

Pantanir, greiðsluskilmálar og sendingar

 

Blanda gegn sliti á meðgöngu
Nuddblanda gegn streitu
Ilmvatn gegn fyrirtíðaspennu
Hamingjublanda
Ónæmisörvandi blanda
"Upp úr sófanum"
Hreinsandi andlitsmaski

Baðblanda fyrir elskendur
Einbeitingar- og minnisbomba
Synergía fyrir öndunarfærin
Hitandi (fóta)bað
Slímlosandi blanda
Mygluð þvottavél (fúkkalykt)
Vond lykt í uppþvottavélinni
Ryksugan
Þurrkarinn
Táfýlueyðir (skór)

Endurnýjandi næturolía
Vöðvabólguolía
Harðsperrunudd

Svefnleysi
Hugleiðslublanda

Blanda gegn sliti á meðgöngu
27 ml Jojoba grunnolía
3 ml rose hip seed grunnolía
5 dropar rose absolute
3 dropar lavender
3 dropar neroli

Nuddblanda gegn streitu
50 ml grunnolía
4 dr bergamot
4 dr chamomile roman
4 dr lavender
4 dr sandalwood
3 dr marjoram sweet
2 dr elemi
2 dr frankincense

Ilmvatn gegn fyrirtíðaspennu
Eftirfarandi blöndu er gott að bera á úlnliði og bak við eyrun eins og ilmvatn. Blandan léttir á einkennum fyrirtíðaspennu, s.s. streitu, pirringi, kvíða og þunglyndi.

4 ml Jojoba grunnolía
Clary sage 4 dr
Geranium 3 dr
Neroli 2 dr
Ylang ylang 2 dr
Benzoin 1 dr
Rose 1 dr

Hamingjublanda
Eftirfarandi blanda hjálpar til við að reka burtu vetrardrungann. Blandan léttir lundina og skerpir hugann. Hún bætir einbeitinguna og hentar því einnig vel fyrir námsmenn ;) Hægt er að setja blönduna í leirbrennara, rafmagnsdreifara eða einfaldlega í skál með vatni og hafa í herberginu. Svo er auðvitað hægt að setja 2 dropa af blöndunni í vasaklút og anda að sér eftir þörfum.

Lemongrass 4 dropar
Orange 4 dropar
Basil 2 dropar

Ónæmisörvandi blanda
Eftir flensur og aðrar erfiðar sýkingar er ónæmiskerfið oft hálf slappt og líkaminn viðkvæmur fyrir frekari sýkingum, s.s. frunsum. Eftirfarandi blöndu er hægt að setja útí baðið eða bera á húðina. Notið u.þ.b. 1 teskeið af blöndunni í bað.

60 ml grunnolía
Rosemary 7 dr
Tea tree 7 dr
Geranium 5 dr
Lavender 5 dr
Elemi 3 dr
Thyme 3 dr
Palmarosa 2 dr
upp

"Upp úr sófanum"
Í skammdegissleninu er oft þörf á smá hvatningu. Notið í herbergisdreifara eða setjið í eldhúsbréf og andið að ykkur eftir þörfum. Blandan eflir framkvæmdagleði og skerpir hugann ;)

Bergamot 6 dropar
Rosemary 3 dropar
Basil 2 dropar

Hreinsandi andlitsmaski
Eftirfarandi maski hjálpar húðinni að losa sig við óhreinindi og dauðar húðfrumur. Þar sem maskinn inniheldur ávaxtasýrur (í appelsínusafanum) og peppermint ætti ekki að nota hann á mjög viðkvæma húð. Blandið öllu saman og berið á andlit og háls. Leggist niður og bíðið í 20 mínútur. Skolið vel af og berið rakakrem (eða olíu) á húðina ef þörf er á. Athugið að nauðsynlegt er að prófa sig áfram með magn innihaldsefna. Bætið við haframjöli ef maskinn er of þunnur og grænu tei ef hann er of þykkur.

2-3 msk haframjöl
1-2 tsk ferskur (nýkreistur) appelsínusafi
1-2 msk volgt grænt te
1 dropi peppermint ilmkjarnaolía
1 dropi lavender ilmkjarnaolía

Baðblanda fyrir elskendur
Þegar fara á í bað með elskunni sinni er gott að eiga rómantíska baðolíu. Blönduna er einnig hægt að nota í nudd en þá er gott að tvöfalda uppskriftina og blanda út í 30 ml af grunnolíu.

3 dropar sandalwood
2 dropar rosewood
1 dropi ylang ylang
1 dropi patchouli

Einbeitingar- og minnisbomba
Þessi blanda er algjört dúndur fyrir námsmenn (og aðra!). Blandan bætir einbeitingu, gefur orku og eflir minni! Hægt er að setja nokkra dropa af blöndunni í ilmker, ilmdreifitæki eða í litla flösku og anda að sér.

6 dropar rosemary
5 dropar grapefruit
5 dropar basil
4 dropar thyme
upp

Synergía fyrir öndunarfærin
Þessi blanda er góð gegn kvefi, hálsbólgu, flensu og þeirra fylgifiskum. Blandan eflir ónæmiskerfið og getur því komið í veg fyrir sýkingar sem oft fylgja í kjölfar kvefs. Setjið nokkra dropa af synergíunni í pappír og andið að ykkur eða 5-7 dropa í baðið.

20 dropar orange
10 dropar eucalyptus
10 dropar juniper
10 dropar pine
6 dropar basil
6 dropar rosewood
4 dropar ginger

Hitandi (fóta)bað
Ef kalt er í veðri er gott að stinga sér (eða bara fótunum) í bað með hitandi ilmkjarnaolíum. Setjið blönduna út í baðið eða fótabaðið rétt áður en stigið er útí. Ef húðin er þurr er gott að blanda ilmkjarnaolíunum fyrst við teskeið af góðri grunnolíu, t.d. Sweet Almond.

3 dropar pepper black
2 dropar ginger
2 dropar rosemary

Slímlosandi blanda
Eftirfarandi blanda losar um stíflur og slím í öndunarfærum. Hún er góð við bronkítis, ennisholubólgum og þrálátum sýkingum. Blandið við 30 ml af grunnolíu og berið á bringu og háls nokkrum sinnum á dag.

12 dropar eucalyptus
5 dropar peppermint
5 dropar thyme
upp

Mygluð þvottavél (fúkkalykt):
Setjið nokkra dropa af tea tree í sápuhólfið eða í tusku inn í vélina og þvoið á 30-40 °C

Vond lykt í uppþvottavélinni:
2-3 dropar af lemon eða orange í sápuhólfið

Ryksugan:
Setjið nokkra dropa af ilmkjarnaolíu að eigin vali í smá snifsi af eldhúsbréfi og byrjið á að ryksuga það upp, nú ilmar allt húsið þegar þið ryksugið

Þurrkarinn:
Setjið klút með 10-15 dropum af ilmkjarnaolíu með fötunum í þurrkarann, þá ilmar allt

Táfýlueyðir (skór):
8 msk matarsódi
20 dr tea tree
10 dr lavender
10 dr lemon
Blandið saman og setjið smá í sveittu skóna. Látið liggja í nokkra klukkutíma og dustið svo úr. Þetta þarf að gera nokkrum sinnum til að fá góðan árangur

Endurnýjandi andlitsolía
Notið eins og rakakrem kvölds og morgna
27 ml Jojoba grunnolía
3 ml Rose hip seed grunnolía
Geranium 3 dr
Neroli 3 dr
Rosewood 3 dr
Frankincense 2 dr
Vetiver 1 dr
upp

Vöðvabólga
Mjög sterk (5%) verkjastillandi, krampaeyðandii og hitandi olía. Notið ekki að staðaldri í langan tíma. Einnig er hægt að gera bakstur úr blöndunni en þá er grunnolíunum sleppt.
25 ml Sesam grunnolía
5 ml St. John’s wort macerat
Camphor 13 dr
Cajeput 8 dr
Peppermint 5 dr
Clove bud 4 dr

Harðsperrunudd
Nuddið á auma og sára vöðva eftir líkamsræktina
25 ml Grapeseed grunnolía
5 ml St. John’s wort macerat
Peppermint 4 dr
Ginger 3 dr
Pepper black 2 dr

Svefnleysi
Nuddið líkamann með blöndunni fyrir svefninn. Einnig er hægt að setja nokkra dropa af blöndunni í skál með vatni sem geymd er á náttborðinu eða í rafmagnsdreifara sem hafður er í gangi í herberginu (án grunnolíu)
50 ml grunnolía
Lavender 6 dr
Sandalwood 4 dr
Marjoram sweet 3 dr
Chamomile Roman 3 dr
Vetiver 2 dr
Ylang ylang 1 dr

Hugleiðslublanda
Blandið saman og notið 5-10 dropa í ilmdreifara við hugleiðslu. Fínt í jógaæfingarnar
Sandalwood 20 dr
Rosewood 12 dr
Elemi 10 dr
Cedarwood 5 dr
Frankincense 5 dr
Myrrh 5 dr
Vetiver 5 dr
upp

Athugið einnig síðurnar Meðferðareiginleikar ilmkjarnaolía og öryggisatriði við notkun ilmkjarnaolía.

 

______________________________________________________________

Palmarosa - Oshadhi á Íslandi

Rúna Björk Smáradóttir, B.Sc. líffræðingur
Sími: 691 3129
Netfang: palmarosa@palmarosa.is

Síðast uppfært 21. ágúst 2009