Oshadhi

 Heim

Oshadhi ilmkjarnaolíur

Oshadhi grunnolíur

Oshadhi synergíur

Oshadhi blómavötn

Ilmdreifitæki

Námskeið

Um Palmarosa

Um Oshadhi

Pantanir, greiðsluskilmálar og sendingar

 

Í ilmkjarnaolíumeðferðum skiptir miklu máli að nota aðeins hágæða ilmkjarnaolíur. Falsaðar olíur gera í besta falli ekkert gagn en geta í versta falli skaðað. OSHADHI ilmkjarnaolíur njóta trausts og virðingar meðferðaraðila um allan heim og eru þekktar fyrir einstök gæði og hreinleika.

Hér má sjá vottorð um lífræna ræktun hráefnis hjá OSHADHI

Oshadhi vörulínan inniheldur ríkulegt úrval af hreinum ilmkjarnaolíum úr lífrænni ræktun, villtum plöntum og frá völdum ræktendum. Hráefnið í olíurnar á sér uppruna um allan heim. Þegar ilmkjarnaolíur í Oshadhi línuna eru valdar er þess gætt að velja aðeins hágæða olíur sem hafa framúrskarandi meðferðareiginleika.

Oshadhi býður upp á vörulínu sem inniheldur yfir 400 gerðir ilmkjarnaolía sem hafa verið sérvaldar af stofnanda fyrirtækisins, dr. Malte Hozzel. Allar olíurnar eru 100% hreinar og án aukaefna. Palmarosa býður uppá gott úrval ilmkjarnaolía en getur sérpantað allar Oshadhi olíurnar. Allt úrvalið má sjá á www.oshadhi.eu

Auk þess að leggja metnað í gæði og meðferðareiginleika ilmkjarnaolíanna er náttúruvernd sérlega mikilvæg í huga dr. Hozzel og Oshadhi leggur áherslu á að vernda umhverfið og styður lífræna ræktun.

Allar Oshadhi ilmkjarnaolíur eru skilgreindar samkvæmt eftirfarandi atriðum:

Ræktunaraðferð
Plöntuhluta
Upprunalandi
Latnesku heiti
Helstu efnahópum sem olían inniheldur
Allar olíur eru 100% hreinar
Olíurnar hafa ekki verið þynntar og engum kemískum efnum hefur verið bætt í þær
Olíunum hefur ekki verið breytt á neinn hátt eftir eimingu

 

_________________________________________________________

Palmarosa - Oshadhi á Íslandi

Rúna Björk Smáradóttir, B.Sc. líffræðingur
Sími: 691 3129
Netfang: palmarosa@palmarosa.is

Síðast uppfært 19. ágúst 2009