Meðferðareiginleikar
grunnolía:
Apricot kernel (Prunus armeniaca)
Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega rakaskertri, viðkvæmri
og eldri húð. Inniheldur mikið af steinefnum og vítamínum. Góð gegn
ótímabærum öldrunarbreytingum. Notuð á viðkvæma og þurra húð og við
húðbólgum. Mjög góð andlitsolía og rakagefandi fyrir hársvörð.
til baka
Arnica (Arnica officinalis)
Jurtin lögð í ólífuolíu þar til virk efni hafa borist í olíuna
(macerat). Hefur örvandi áhrif á hringrásarkerfi.
Bólgueyðandi og oft notuð á marbletti og meiðsli þar sem húð hefur
ekki rofnað.
til baka
Avocado (Persea americana)
Inniheldur mikið af vítamínum (A, B og E) og er mjög nærandi. Mjög
góð á þurra húð, exem og almennt á erta húð. Góð gegn appelsínuhúð.
Notið 10% í blöndur.
Til baka
Coconut (Cocos nucifera)
Föst við stofuhita en bráðnar við líkamshita. Mjög
rakagefandi og góð fyrir þurra og erta húð. Góð næring fyrir þurrt
hár.
Til baka
Evening Primrose
(Oenothera biennis)
Evening primrose er frábær
húðolía. Hún er notuð til að meðhöndla þurra og mjög þurra húð Hún er
einnig endurnýjandi, nærandi og styrkjandi fyrir húðina og þannig
mikið notuð fyrir eldri húð. Einnig er olían notuð gegn ýmsum
húðsjúkdómum, s.s. exemi og psoriasis auk þess sem hún er hjálpleg í
meðferð gegn flösu og öðrum vandamálum í hársverði.
til baka
Grapeseed (Vitis
vinifera)
Hentar öllum húðgerðum, þó síst þurri húð. Mjög góð fyrir feita húð.
Olían er létt og lyktarlítil og dregst vel inn í húðina.
til baka
Hazelnut (Coryllus avellana)
Herpandi og dregst hratt inn í
húðina. Góð fyrir feita og bólótta húð. Styrkir háræðar og því góð
fyrir háræðaslitna húð.
til baka
Jojoba (Simmondsia californica)
Hentar öllum húðgerðum og þá sérstaklega þurri húð. Olían líkist
húðfitu og kemst mjög auðveldlega inn í efstu lög húðar til að næra hana.
Inniheldur prótein, vítamín og steinefni. Olían er mýkjandi og
rakagefandi og því góð fyrir þurra húð. Hún er bólgueyðandi og þess
vegna góð á exem. Jojoba eykur teygjanleika
húðar. Hún ver húðina fyrir útfjólubláum geislum (SPF 4) og er
sérstaklega góð fyrir neglur og naglabönd.
Jojoba er sérlega geymsluþolin og eykur geymslutíma í blöndum. Af
þessum sökum er hún algeng í ilmvatnsblöndum.
til baka
Marigold (Calendula)
(Calendula officinalis)
Jurtin lögð í ólífuolíu þar til virk efni hafa borist í olíuna (macerat). Oftast notuð 15-25% í blöndur. Calendula er
bólgueyðandi, græðandi, herpandi og sveppaeyðandi. Hún er því góð á
öll húðvandamál, s.s. þurra húð, exem, psoriasis, kláða, bólgur og
eymsli. Hún er græðandi og hreinsandi á sár og frábær á brunasár og
bleiubruna. Mjög gagnleg í fæðingu þar sem hún mýkir
grindarbotnsvöðva. Einnig notuð á æðahnúta og háræðaslit.
til baka
Rosa rubiginosa
(Rosa rubiginosa)
Rosa rubiginosa hentar öllum húðgerðum
nema feitri húð og er sérlega góð fyrir eldri húð og þurra húð. Rosa
inniheldur lífsnauðsynlegar fitusýrur sem vinna gegn ótímabærri öldrun
og þurrki í húð. Hún dregur úr hrukkum, húðsliti, háræðasliti og vinnur
gegn öramyndun eftir bruna, uppskurði og áverka.
Algengt er að nota Rosa 10% í blöndur eða eina og sér fyrir mjög þurra
eldri húð.
til baka
Rice bran (Oryza sativa)
Góð alhliða nuddolía en dálítið feit svo að gott er að blanda hana til
helminga við Grapeseed.
til baka
Sesam (Sesamum
indicum)
Hentar öllum húðgerðum. Inniheldur E-vítamín, steinefni, prótein og
lesitín. Notuð á exem, psoriasis þar sem hún nærir og mýkir. Vinnur
gegn ótímabærri öldrun húðar.
til baka
St. John's Wort
(Hypericum perforatum)
Jurtin lögð í
ólífuolíu þar til virk efni hafa borist í olíuna (macerat). Eykur blóðflæði til svæðis sem
hún er borin á. Notuð gegn
gigt og liðagigt, á sár, sólbruna, marbletti og gyllinæð.
til baka
Sweet Almond
(Prunus amygdalus)
Hentar öllum húðgerðum. Inniheldur mikið af próteini, vítamínum og
steinefnum. Veitir góða rakagjöf og verndar, mýkir og nærir húðina.
Notuð á exem, kláða, ertingu, eymsli, þurrk, bólgur, háræðaslit og
brunasár. Mjög góð fyrir hendur og neglur. Góð í blöndur fyrir börn.
til baka
Wheatgerm (Triticum
vulgare)
Hveitikímsolían hentar ekki þeim sem hafa ofnæmi fyrir hveiti. Olían
er þung og lyktsterk og því aðeins notuð 5-10% í blöndur (jafnvel
aðeins nokkrir dropar). Hún eflir endurnýjun húðarinnar og minnkar
öramyndun og húðslit. Vinnur gegn ótímabærri öldrun húðar og er notuð
á exem, psoriasis, þurra og sprungna húð og brunasár. Góð after-sun
olía.
til baka
upp |